TransGranCanaria 2012 – Race Report

Síða 12 í WN

Umfjöllun um afrek Bigga og Gúsa í fréttabréfi Compressport

Spirit of Sahara

Naglarnir Birgir og Gústi kenndir við BootCamp tóku þátt í ofurmaraþoni á dögunum.  Sem er ekki frásögum færandi þar sem hlaupið er við vægast sagt erfiðar aðstæður í Sahara eyðimörkinni . Þar rokkar hitastigið frá -4°c og upp í +35°c yfir daginn.  Hlaupið tekur 4 daga og er lengsti leggurinn 42km.  Þeir félagar gerðu sér lítið fyrir og unnu til verðlauna, „Spirit of Sahara“ en það eru verðlaun sem eru veitt þeim þátttakendum sem koma um langan veg og takast á við verkefnið með bros á vör og það allan tíman. Þeir sem þekkja til þeirra vita að þeir eru með frægar broshrukkur enda síbrosandi þannig að þessi verðlaun koma ekki á óvart.

Félagarnir tóku ástfóstri við vörur frá Compressport og hér kemur smá umsögn frá þeim.

Sokkarnir og hlífarnar reyndust okkur ótrúlega vel.  Sokkarnir og hlífarnar tryggja stöðugt blóðflæði og bólgur undan hita og miklu álagi verða mun minni. Vorum alveg lausir við blöðrur og það þökkum við að miklu leyti sokkunum sem fara einstaklega vel með fæturna. Við komum alltaf til með að nota Compressport. Það er öruggt ;)

IronViking vill óska þeim félögum  til hamingju með frábæran árangur og gríðarlegt afrek.

Síða 18 í WN

Fréttir af fyrsta móti af fjórum í Þrekmótaröðinni eru nú í vikufréttum Compressport.  Arnar Sigurðsson og Freyr Hákonar taka sig vel út í vörum frá Compressport

Nýjir litir í R2 og ný vara “AS”

LAUS VIÐ ÞREYTUNA!!! í nýju handahlífunum frá Compressport ertu laus við þreytu eftir löng sundsett og erfiðar líkamsæfingar, t.d í crossfit eða bootcamp tímana svo eitthvað sé nefnt.
Kíktu í TRI Suðurlandsbraut 32 og kynntu þér málin og skoðaðu í leiðinni nýju litina í R2

Umsögn um AS frá Arnari Sigurðsyni bootcampþjálfara og maraþonhlaupara:
Ég prófaði handahlífarnar áðan þegar ég renndi í gegnum einstaklingskeppnina fyrir Crossfitleikana og viti menn Compressport eru alveg að halda sínum gæðastandard á þessari vöru líka. Ég þarf að prófa þetta samt betur þar sem ég grilla vel á mér hendurnar og sjá hvernig það kemur út. Þær voru samt mjög þægilegar og mér leið mjög vel í höndunum í gegnum WOD-in það er kannski aðallega í þriðja WOD-inu(12 min- power clean, burpees og kb sveiflur) þar sem það reynir vel á hendurnar og mér fannst hlífarnar virka nokkuð vel í gegnum þetta allt. Hlakka til að prófa þetta aðeins betur en þetta lofar nokkuð góðu.

Kjósa COMPRESSPORT®

Neðangreindir íþróttamenn kjósa Compressport.

Birgir Sævarsson (maraþonhlaupari), Friðleifur Friðleifsson (hlaupari), Ebba Særún Brynjarsdóttir (hlaupari og spinningkennari) og Arnar Sigurðsson (bootcamp, crossfit og hlaupari).
Gæði Compressport-varanna tala sínu máli og margir afburða íþróttamennkjósa að nota vörurnar við æfingar, keppnir og við endurheimt orku.

Gerplustelpur á forsíðu vikufrétta

Það eru fimleika stelpurnar úr Gerplu sem prýða forsíðu vikufrétta Compressport (fréttabréf hægra megin). Stelpurnar hafa notað R2 kálfahlífar við æfingar og endurheimt eftir æfingar (Training and Recovery) með góðum árangri þar sem það mæðir mikið á þeim oft á tíðum út af miklu æfingaálagi.

Ljósmynd: Pétur Þór Ragnarsson

Spennandi vöruþróun

Compressport teymið kynnir nýjustu afurð sína í lok janúar 2012. Um er að ræða þrýstihlífar fyrir hendur. Tvær útfærslur verða í boði. Virkilega áhugaverð vara sem verður tekin opnum örmum.
Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar um vöruna.

Gleðilegt nýtt ár!

Trail Verbier-St Bernard

Flott video af utanvegahlaupi “Trail Verbier St Bernard”